Livey tekur yfir Handboltapassann
Sævar Jónasson

Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Livey og Handknattleikssamband Íslands náð samkomulagi um að Livey taki yfir rekstur Handboltapassans frá og með komandi keppnistímabili.

Handboltapassinn hefur verið í umsjón HSÍ síðustu þrjú tímabil og þar hafa áhorfendur heima í stofu getað fylgst með leikjum úr íslenskum handbolta í beinni útsendingu allt frá meistaraflokksleikjum og niður í 4.flokks leiki.

Samkvæmt heimildum Handkastsins á þó enn eftir að skrifa undir endanlegan samning milli HSÍ og Livey, en búist er við að það verði gert á næstu dögum.

Þrátt fyrir breytinguna munu áfram verða valdir leikir sýndir í opinni dagskrá á Sjónvarpi Símans. Hins vegar verður fyrirkomulagið ekki með sama hætti og undanfarin þrjú tímabil, þegar einn leikur í hverri umferð í Olís-deild karla og kvenna voru sýndir í opinni dagskrá.

Livey hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem öflugur aðili á markaði fyrir íþróttaútsendingar hér á landi. Fyrirtækið er meðal annars með sýningarrétt á leikjum í Evrópudeild karla og Meistaradeild Evrópu í handbolta og hefur jafnframt sinnt útsendingum frá ýmsum öðrum íþróttaviðburðum, bæði hér heima og erlendis frá.

Verði samningurinn formlega staðfestur á næstu dögum markar það tímamót í miðlun íslensks handbolta, þar sem rekstur Handboltapassans færist frá HSÍ til einkarekinnar streymisveitu í fyrsta sinn frá því þjónustan var tekin í notkun.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top