Fimman er liður á Handkastinu sem hluti af upphitun fyrir keppnistímabilið 2026/2027 sem hefst í byrjun september. Í Fimmunni tekur Handkastið saman lista af hinu og þessu sem Handkastið telur áhugavert og í þessum lista tekur Handkastið saman lista af leikmönnum sem verða á nýjum slóðum á komandi tímabili þar sem athyglin verður á þeim leikmönnum af mismunandi ástæðum. Hér má sjá Fimmuna af leikmönnum á nýjum slóðum:
Var keyptur í FH frá Fram mjög óvænt eftir að hafa skrifað undir nýjan samning við Fram á þessu ári. Fór á fund með stjórn Fram eftir tímabilið og tilkynnti Fram að hann vildi fara frá félaginu. FH hafði samband stuttu síðar og keypti hann frá Fram. Það verður áhugavert að fylgjast með framgangi Eiðs Rafns á nýjum slóðum í vetur.
Stærsti leikmaður deildarinnar hefur yfirgefið heimahagana í Garðabænum og gengið í raðir Íslands- og deildarmeistara Vals. Stórt skref fyrir stóran mann. Jón Ásgeir er að koma inn í hóp hjá félagi þar sem mikill metnaður, agi og skipulag ræðir ríkjum. Hann þarf að læra hratt á nýjum slóðum.
Kom óvænt heim úr atvinnumennsku um áramótin vegna barneignar en hann var frábær með Hagen fyrri hluta síðasta tímabils í þýsku 2.deildinni. Hákon Daði var með tæplega 7 mörk að meðaltali í leik með ÍBV eftir áramót en nú er hann kominn á nýjar slóðir og á að fylla skarð Ihor Kopysinskyi sem hefur verið frábær með Aftureldingu síðustu ár.
Sennilega áhugaverðustu félagaskipti sumarsins. Bandaríski landsliðsmaðurinn, Sigurður Jefferson er kominn á nýjar slóðir og það hjá bikarmeisturum Hauka. Hann hefur yfirgefið uppeldisfélag sitt, HK þar sem hann hefur verið einn af máttarstólpum liðsins undanfarin ár. Nú tekur hann næsta skref á sínum ferli og gæti styrkt lið Hauka gríðarlega, bæði varnar og sóknarlega. Á tímabili í vetur hafði hann ekki klikkað skoti.
Það verða “Danskir dagar” í Þorpinu í vetur. Hvorki fleiri né færri en fjórir Danir hafa gengið í raðir Þórs í sumar að utan og eru nú komnir á nýjar slóðir í nýju landi. Þrír þeirra koma beint frá heimalandinu en sá fjórði kemur frá Færeyjum eftir að hafa vakið verðskuldaða athygli þar síðustu ár.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.