Strákarnir í U18 ára landsliði Íslands virðast vera óstöðvandi á Evrópumótinu sem fram fer í Serbíu um þessar mundir. Eftir þrjá sannfærandi sigra í riðlakeppninni tók við leikur gegn Króatíu í milliriðli í dag en bæði lið komu inn í milliriðilinn með tvö stig á bakinu eftir góðan árangur í riðlakeppninni. Eftir brösuga byrjun hjá íslenska liðinu í upphafi leiks kveiktu strákarnir á sér í stöðunni 8-8 og breyttu stöðunni í 13-8 og leiddu í hálfleik með fimm mörkum 16-11. Eftir það var ekki aftur snúið og léku íslensku strákarnir sér að þeim króatísku í seinni hálfleik og náðu mest tólf marka forystu í stöðunni 30-18. Króatarnir náðu aðeins að laga stöðuna fyrir leikslok og lokatölur 37-29 Íslandi í vil. Brynjar Narfi Arndal og Freyr Aronsson voru stórkostlegir í sóknarleik Íslands í leiknum og skoruðu 20 mörk samtals, Brynjar Narfi ellefu mörk og Freyr níu. Logi Finnsson kom næstur með fjögur mörk. Ómar Darri Sigurgeirsson og Gunnar Róbertsson höfðu hægt um sig í leiknum í dag en þeir skoruðu samtals fjögur mörk og öll undir lok leiks. Á morgun mætir Ísland, Portúgal í lokaleik sínum í milliriðlinum. Portúgal mætir Ungverjalandi síðar dag en bæði lið eru án stiga. Leikur Íslands og Portúgals hefst klukkan 15:00 á morgun. Markaskorar Íslands: Brynjar Narfi Arndal 11, Freyr Aronsson 9, Logi Finnsson 4, Anton Frans Sigurðsson 3, Ómar Darri Sigurgeirsson 3, Alex Unnar Hallgrímsson 2, Sigurður Atli Ragnarsson 2, Ragnar Hilmarsson 1, Gunnar Róbertsson 1, Bjarki Snorrason 1. Markvarsla: Morgan Goði Garner 14 varðir, 39% markvarsla.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.