Ásgeir Örn gæti afrekað það sem enginn Íslendingur hefur gert
Eyjólfur Garðarsson

U18 ára landslið karla hefur tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum Evrópumótsins eftir glæsilega byrjun á mótinu. Íslenska liðið hefur unnið alla fjóra leiki sína sannfærandi og vakið verðskuldaða athygli fyrir öflugan leik bæði í vörn og sókn.

Einn af þremur þjálfurum liðsins er Ásgeir Örn Hallgrímsson, en hann á sjálfur sérstakan kafla í sögu íslensks handbolta. Árið 2003 var hann lykilmaður í íslenska U18 ára landsliðinu sem varð Evrópumeistari eftir sigur á Þýskalandi í úrslitaleik. Ásgeir var markahæsti leikmaður mótsins með 55 mörk og var valinn í stjörnulið keppninnar. Daninn, Morten Olsen var valinn besti leikmaður mótsins.

Nú, 23 árum síðar, stendur hann á hliðarlínunni með kynslóð sem virðist eiga fullt erindi í fremstu röð Evrópu.

Ísland mætir Portúgal í dag klukkan 15:00 í lokaleik sínum í milliriðlinum. Með sigri getur íslenska liðið tryggt sér besta árangur allra liðanna í milliriðlunum, sem myndi þýða hagstæðasta mögulega mótherjann í 8-liða úrslitunum.

Þrátt fyrir að stóru úrslitaleikirnir séu enn fram undan er ljóst að íslenska liðið hefur sent skýr skilaboð á aðrar þjóðir á mótinu. Aðeins þrír sigrar skilja liðið frá Evrópumeistaratitlinum og ljóst að íslenska liðið er liðið sem aðrar þjóðir þurfa að varast.

Spurningin sem margir handboltaáhugamenn velta nú fyrir sér er því einföld:

Getur Ásgeir Örn Hallgrímsson afrekað það sem enginn annar Íslendingur hefur gert áður – að verða Evrópumeistari í U18 flokki bæði sem leikmaður og þjálfari?

Svarið við þeirri spurningu fæst á næstu dögum, en eitt er víst: íslenska liðið hefur skapað sér frábæra stöðu og virðist tilbúið að berjast um verðlaun á mótinu.

Ásgeir Örn er einn af þremur þjálfurum U18 ára landsliðsins en með honum eru þeir Andri Sigfússon og Snorri Steinn Guðjónsson. Ekki amalegt þjálfarateymi með liðinu en það er sjaldséð sjón að HSÍ bjóði upp á þriggja þjálfarateymi á stórmótum yngri landsliða.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top