Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Fram fundið eftirmann Breka Hrafns Árnasonar, sem gekk á dögunum til portúgalska stórliðsins Benfica. Heimildir Handkastsins herma að markvörðurinn Stefán Freyr Jónsson hafi gengið til liðs við Fram og verði kynntur sem nýr leikmaður félagsins áður en langt um líður. Stefán Freyr, sem er fæddur árið 2004, er uppalinn hjá Herði á Ísafirði og hefur leikið allan sinn feril með uppeldisfélaginu. Hann var í stóru hlutverki í marki Harðar á síðustu leiktíð í Grill66-deildinni þar sem liðið fór alla leið í úrslitaeinvígi um laust sæti í Olís-deild karla. Þar hafði Stjarnan hins vegar betur og vann einvígið 3-0. Með komu Stefáns Freys hefur Fram brugðist hratt við brotthvarfi Breka Hrafns. Honum er ætlað að mynda markvarðarteymi með Arnóri Mána Daðasyni og Jóhanni Ágústssyni. Jóhann, sem fæddur er árið 2008, gekk til liðs við Fram frá Val fyrr í sumar. Fram virðist því leggja áherslu á unga og efnilega markverði fyrir komandi tímabil, þar sem Stefán Freyr fær tækifæri til að leika í Olís-deildinni eftir að hafa vakið athygli með Herði á síðustu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.