Strákarnir í U18 ára landsliðinu úr leik eftir tap gegn Þýskalandi
EHF

U18 ára landslið Íslands tapaði í dag í 8-liða úrslitum gegn sterku þýsku liði 33-31 eftir að hafa verið marki undir í hálfleik 15-16.

Þýskaland var með yfirhöndina allan tímann en íslenska liðið vann sig þó inn í leikinn eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn. Markvörður Þjóðverja reyndist íslensku strákunum erfiður og varði hvert dauðafærið á fætur öðru.

Undir bálok fyrri hálfleiks fékk Logi Finnsson rautt spjald eftir að hafa kastað sér á markvörð þýska liðsins í hraðaupphlaupi. Við það sauð allt uppúr og fékk einn af þjálfurum þýska liðsins til að mynda einnig rautt spjald.

Í seinni hálfleik var þýska liðið alltaf skrefinu á undan og íslensku strákarnir náðu aldrei í skottið á þeim.

Freyr Aronsson var markahæstur í íslenska liðinu með 6 mörk. Bjarki Snorrason og Ómar Darri Sigurgeirsson skoruðu 5 mörk hvor. Alex Unnar Hallgrímsson og Gunnar Róbertsson skoruðu 4, Brynjar Narfi Arndal skoraði 3 mörk. Patrekur Smári Arnarson og Anton Frans Sigurðsson skoruðu 2 mörk hvor.

Íslensku markmennirnir vörðu samtals 10 skot en Tjorven Knackstedt, markmaður Þýskalands, varði 14 skot.

Við tekur því krossspil um sæti 5-8 hjá íslensku strákunum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top