Gummersbach vill halda Guðjóni Val sem á eitt ár eftir
Michael Hundt / AFP

Guðjón Valur Sigurðsson er samningsbundinn VfL Gummersbach til sumarsins 2027. Félagið vill framlengja við Íslendinginn en útilokar ekkert og er þegar farið að undirbúa sig fyrir þann möguleika að hann yfirgefi félagið segir í erlendum fjölmiðlum.

Guðjón Valur hefur stýrt Gummersbach frá árinu 2020 og á þeim tíma hefur honum tekist að lyfta félaginu aftur upp í þýsku Bundesliguna og festa það í sessi meðal sterkustu liða deildarinnar. Samningur hans rennur út sumarið 2027 og enn hefur ekkert verið tilkynnt um framtíð hans.

Christoph Schindler, framkvæmdastjóri Gummersbach, fer þó ekki í grafgötur með að félagið vilji halda Íslendingnum.

„Allir vita að Goggi er mjög, mjög eftirsóttur þjálfari,“ segir Schindler við þýska miðilinn Handball-World. Schindler segir jafnframt að það sé engin leynd að félagið vilji framlengja samninginn við Guðjón Val. En Gummersbach getur ekki leyft sér að bíða aðgerðalaust.

Félagið þarf að skipuleggja leikmannahópinn langt fram í tímann og framtíð þjálfarans getur haft veruleg áhrif á þær ákvarðanir. Leikmenn sem félagið hefur áhuga á vilja eðlilega einnig vita hver muni stýra liðinu þegar þeir ganga til liðs við það.

Því vinnur Gummersbach nú að tveimur sviðsmyndum í einu – að halda Guðjóni Val og finna jafnframt mögulegan eftirmann ef hann ákveður að yfirgefa félagið.

„Á einhverjum tímapunkti mun koma tilkynning sem getur farið í báðar áttir,“ segir Schindler. Það er því ljóst að framtíð Guðjóns Vals er þegar orðin að stóru umræðuefni innan Gummersbach. Þrír Íslendingar leika með Gummersbach á komandi tímabili, þeir Elliði Snær Viðarsson, Teitur Örn Einarsson og Garðar Ingi Sindrason.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top