Daníel Freyr Andrésson mun ekki hefja tímabilið í marki FH-inga en hann sleit hásin á æfingu með FH liðinu í gær. Aron Pálmarsson þjálfari FH staðfesti þetta í samtali við Handkastið í dag. Ljóst er að um mikla blóðtöku fyrir FH er að ræða en Daníel var með rétt rúmlega 30% hlutfallsmarkvörslu í deildinni í fyrra auk þess sem hann var alveg frábær í marki FH í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í vor. FH spilar einnig í riðlakeppni Evrópudeildarinnar sem hefst 29. september og ljóst er að Daníel verður ekki með liðinu þar. Mun því mæða enn meira á Jóni Þórarni Þorsteinssyni í marki FH.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.