

Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum. Olís-deild karla hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni. Í dag förum við yfir Íslands- og deildarmeistara Vals. Síðasta tímabil: Frábært tímabil hjá Val í fyrra þar sem liðið tryggði sér Íslands- og deildarmeistaratitilinn eftir mikla baráttu við FH allt fram í oddaleik. Hefðu eflaust vilja fara lengra í bikarkeppninni en duttu þar út gegn bikarmeisturunum Hauka í vítakastkeppni snemma í keppninni. Þjálfarinn: Ágúst Jóhannsson tók við liðinu í fyrra og gerði liðið að tvöföldum meisturunum á sínu fyrsta tímabili. Ágúst hafið áður gert frábæra hluti með kvennalið Vals og hélt áfram sigurgöngu sinni á sínu fyrsta tímabili með karlalið Vals. Breytingar: Það hafa verið talsverðar breytingar á liði Vals í sumar og hefur mikil reynsla farið úr liðinu en Róbert Aron Hostert, Agnar Smári Jónsson og Magnús Óli Magnússon hafa allir lagt skónna á hilluna frægu. Þorvaldur Örn Þorvaldsson fór í atvinnumennsku og Dagur Árni Heimisson fór aftur heim í KA. Jón Ásgeir Eyjólfsson, Bessti Teitsson, Ágúst Ingi Óskarsson og Tjörvi Týr Gíslason hafa allir gengið til liðs við Val í sumar. Fylgist með: Framtíðin: Valur vilja alltaf vera berjast um alla titla en reynsla í hópnum hefur aðeins minnkað milli ára. Liðið mun leika í Evrópudeildinni í vetur þannig álagið á hópnum mun vera mikið fyrir jól. Það gæti haft áhrif á það hvort liðið verði að berjast um deildarmeistaratitilinn í vetur en engar áhyggjur, Valsmenn verða mættir meðal þeirra bestu þegar allt verður undir í vor.
Lykilmenn:
Björgvin Páll Gústavsson, Tjörvi Týr Gíslason, Gunnar Róbertsson
Tjörvi Týr Gíslason er kominn aftur heim eftir erfiða dvöl í atvinnumennsku. Tjörvi Týr var einn af betri mönnum deildarinnar á báðum endum vallarins áður en hann fór út og mun mikið mæða á honum í vetur þar sem mikil reynsla fór úr liðinu í sumar.
Gunnar Róbertsson er einn efnilegasti leikmaður landsins. Var í töluvert stærra hlutverki í liði Vals í fyrra en menn bjuggust við. Algjör lykilmaður í gríðarsterku 2008 landsliði Íslands sem endaði í 5.sæti á Evrópumótinu fyrir skemmstu. Klárlega einn af okkar efnilegustu leikmönnum í dag og verður í stóru hlutverki í vetur.
Við hverju má búast:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.