Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, leitar að metnaðarfullum og faglegum yfirþjálfara fyrir Hæfileikamótun sambandsins. Hæfileikamótun HSÍ er þróunarverkefni fyrir efnilegt ungt handknattleiksfólk þar sem þátttakendur hittast fimm helgar á ári. Markmiðið er að stuðla að frekari þróun ungra leikmanna og móta næstu kynslóð íslensks handknattleiksfólks. Á tímabilinu 2026–2027 verður Hæfileikamótunin fyrir leikmenn í 2013 árgangi og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á gulli@hsi.is fyrir 15. september 2026. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu HSÍ.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.