Ólafur Rafn orðinn leikmaður FH
Sævar Jónasson

Markvörðurinn, Ólafur Rafn Gíslason er orðinn leikmaður FH og er löglegur með liðinu gegn Stjörnunni í 1.umferð Olís-deildar karla á morgun. Hann hefur fengið félagaskipti yfir í FH frá ÍR.

Leikurinn fer fram í Kaplakrika og hefst klukkan 20:15 en Olís-deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum.

Ólafur Rafn hefur undanfarin ár leikið með ÍR en þar áður með Stjörnunni og Haukum þar sem hann er uppalinn. Ólafur ákvað að leggja skóna á hilluna eftir síðustu leiktíð en hann var hluti af liði ÍR sem féll úr Olís-deildinni á síðustu leiktíð.

Markmannsþjálfari Stjörnunnar gæti spilað gegn Stjörnunni

FH-ingar hafa hinsvegar fengið hann til að skipta um skoðun en eftir að Daníel Freyr Andrésson sleit hásin á dögunum var ljóst að FH þurfti að finna sér nýjan markvörð fyrir tímabilið en fyrir er Jón Þórarinn Þorsteinsson og Jóhannes Andri Hannesson sem er fæddur árið 2008.

Handkastið greindi frá því um helgina að Ólafur hafi verið með FH í síðasta æfingaleik liðsins gegn Fram.

Leggur skóna á hilluna eftir sex ár í Breiðholtinu

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top