Arnar Daði semur óvænt við Selfoss
Egill Bjarni Friðjónsson

Selfyssingar sem hefja leik í Olís-deild karla í kvöld þegar liðið fær Íslands- og deildarmeistara Vals í heimsókn hafa sótt sér liðstyrk fyrir komandi tímabil. Leikurinn hefst klukkan 19:30.

Vinstri hornamaðurinn, Arnar Daði Brynjarsson hefur samið við félagið og gengur í raðið félagsins frá Mílunni sem er venslalið Selfoss. Er Arnari Daða sennilega ætlað að fylla skarð Hannesar Höskuldssonar sem glímir við meiðsli og verður frá keppni næstu vikurnar.

Sá lang markahæsti missir af upphafi tímabilsins

Arnar Daði er fyrsti leikmaðurinn sem Selfoss fær til sín í sumar en þjálfarabreytingar urðu á liðinu í sumar þegar Örn Þrastarson tók við liðinu af Carlos Martin Santos.

Arnar Daði er fæddur og uppalinn á Selfossi og er fæddur árið 2003. Arnar Daði er kominn með leikheimild hjá Selfossi og gæti spilað með liðinu gegn Val í kvöld.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top