Þór vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Olís-deild karla þegar liðið lagði HK 36-31, á Akureyri í kvöld. Þórsarar höfðu frumkvæðið nánast allan leikinn og frábær markvarsla Nikola Radovanovic hjálpaði liðinu mikið í leiknum. Þór kom inn í leikinn eftir 38-34 tap gegn Fram í 1. umferðinni en HK hafði tapað 37-28 fyrir KA. Heimamenn byrjuðu betur og náðu snemma tveggja marka forskoti. HK hélt þó vel í við Þór og munurinn var lengst af aðeins eitt til þrjú mörk í fyrri hálfleik. Þegar líða tók á hálfleikinn náðu Þórsarar betri tökum. Þeir komust í 13-10 og síðar 16-13 áður en HK minnkaði muninn. Þór fór með tveggja marka forskot inn í búningsklefa, 17-15. Markverðir beggja liða voru áberandi. Nikola Radovanovic varði 15 skot fyrir Þór en Brynjar Vignir Sigurjónssonvarði tíu fyrir HK. Þórsarar tóku síðan leikinn föstum tökum snemma í síðari hálfleik. Staðan fór úr 20-19 í 26-19 þegar heimamenn skoruðu sex mörk í röð og þar með var sjö marka munur kominn á liðin. HK gafst þó ekki upp. Gestirnir skoruðu þrjú mörk í röð og minnkuðu í 26-22. Þeir héldu áfram að saxa á forskotið og þegar tæpar níu mínútur voru eftir var munurinn aðeins tvö mörk, 29-27. Þór svaraði á ögurstundu. Heimamenn náðu aftur fjögurra marka forskoti, 31-27, og eftir að HK minnkaði í 31-29 komu þrjú mörk Þórsara í röð. Staðan varð 34-29 og úrslitin nánast ráðin. Þór vann að lokum fimm marka sigur, 36-31, og náði þar með í sín fyrstu tvö stig á tímabilinu. HK er hins vegar enn án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar. Hákon Ingi Halldórsson fór fyrir sóknarleik Þórs og skoraði tíu mörk. Mikkel Bak Scheumann Jensen skoraði sjö en Bertram Simonsen, Oddur Grétarsson og William Skovager gerðu fjögur mörk hver. Hjá HK var Andri Þór Helgason markahæstur með níu mörk. Örn Alexandersson skoraði sex og Kári Tómas Hauksson fimm en hann gekk í raðir félagsins á dögunum eftir veru í Þýskalandi á síðustu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.