
Bandaríkjamennirnir, Gary Phillips og Parkman Cook hafa gengið í raðir ÍBV og munu leika með ÍBV og venslaliði ÍBV, HBH í 2.deild karla í vetur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍBV. ÍBV hefur hafið samstarf við USA team handball, sem er þróunarverkefni sem snýst um að undirbúa bandaríska handboltaleikmenn fyrir Ólympíuleikana sem haldnir verða í Los Angeles í Bandaríkjunum sumarið 2028. ÍBV og USA team handball mættust fyrr í sumar þegar ÍBV var í æfingaferð í Hollandi. Bandaríska liðið var þá á ferðalagi um Evrópu, til þess að æfa og spila við lið frá ýmsum löndum. Meðal annars lék liðið nokkra æfingaleiki í Danmörku og í Hollandi. ,,Í kjölfarið hófst samtal þar sem bandaríska liðið hafði heyrt gott af ÍBV og því starfi sem er unnið hjá félaginu. Þeir eru í þeim fasa að vera að byggja upp handboltamenn, marga hverja frá grunni, og þeir töldu ÍBV vera góðan stað fyrir sína menn," segir í tilkynningunni frá ÍBV en þjálfari USA team handball þekkir vel til Erlings Richardssonar þjálfara ÍBV. Tveir af liðsmönnum USA team handball eru nú á leið til Íslands og munu þeir æfa og spila með ÍBV og HBH í vetur. Um er að ræða þá, Gary Phillips sem er kraftmikil örvhent skytta. Gary var eftirsóttur hjá liðum víðs vegar í Evrópu, en forsvarsmenn USA team handball töldu ÍBV vera besta staðinn fyrir hann til þess að þróast og taka næsta skref sem handboltamaður að sögn ÍBV. Er Gary Philips ætlað að fylla skarð Elís Þórs Aðalsteinssonar sem sleit krossband í sumar með U20 ára landsliði Íslands en ÍBV lék með rétthendan leikmann í stöðu hægri skyttu í tapinu gegn Haukum í 1.umferð Olís-deildarinnar. Parkman Cook, sem er ungur miðjumaður/ vinstri skytta sem kemur einnig til ÍBV. ,,Við hjá ÍBV hlökkum til þess að taka á móti Gary og Parkman og bjóðum þá velkomna til ÍBV," segir ennfremur í tilkynningunni frá ÍBV. „Þegar ég byrjaði fyrst að spila handbolta hjá UNC hefði mig aldrei órað fyrir því að það myndi leiða til þess að ég fengi tækifæri til að spila á Íslandi. Ég er gríðarlega þakklátur fyrir tímann minn hjá UNC, sem og tímann í Flórída þar sem ég æfði með þróunarlandsliði Bandaríkjanna. Evrópuferðin sem við fórum í opnaði síðan dyrnar að þessu tækifæri," sagði Parkman Cook. Vilmar Þór Bjarnason, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV sagði í samtali við Handkastið að leikmennirnir kæmu til Íslands á morgun og myndu í kjölfarið hefja æfingar með ÍBV.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.