
Brynjar Hólm Grétarsson leikmaður Þórs fékk að líta beint rautt spjald eftir rúmlega 10 mínútna leik í sigri liðsins gegn HK í 2.umferð Olís-deildar karla í gærkvöldi. Brynjar Hólm og Örn Alexandersson lentu saman á miðju vallarhelmingi HK þegar Brynjar var að hlaupa til baka eftir að hafa klikkað þriðja skoti sínum í leiknum á stuttum tíma án þess að skora. Rauða spjaldið hefur vakið mikla athygli meðal handbolta áhugafólks í dag þar sem myndskeið af brotinu hefur gengið manna á milli og margir undrast á ákvörðun dómaranna, þeirra Árna Snæs Magnússonar og Þorvars Bjarma Harðarsonar sem voru vissir í sinni ákvörðun og gáfu Brynjari Hólm rautt spjald. Dæmir hver fyrir sig en atvikið má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.