Jóhann Ágústsson, ungur markvörður Fram, lék á dögunum sinn fyrsta leik í Olís-deild karla þegar Fram mætti Val á Hlíðarenda. Frumraunin var nokkuð sérstök fyrir Jóhann enda mætti hann þar bæði uppeldisfélagi sínu og föður sínum, Ágústi Jóhannssyni, þjálfara Vals. Jóhann er fæddur árið 2008 og gekk í raðir Fram frá Val í sumar. Hann fékk að vita aðeins degi fyrir leik að hann yrði í leikmannahópi Fram. „Það var geggjuð tilfinning að spila fyrsta Olís-deildarleikinn minn og það hefur verið markmið hjá mér undanfarin tímabil,“ sagði Jóhann í samtali við Handkastið. Að frumraunin skyldi koma gegn Val gerði stundina enn sérstakari. Jóhann ólst upp hjá félaginu og þekkir því vel marga leikmenn liðsins. „Það var skrítið að koma aftur á Hlíðarenda með þeim tilgangi að fara að spila á móti strákum sem maður þekkir vel og hefur spilað með upp yngri flokka Vals. Það var því smá öðruvísi tilfinning í manni fyrir leik.“ Smá spenna gerði vart við sig þegar kallið kom en hún hvarf fljótt. „Þegar ég kom inn á var ég með smá fiðring í maganum en eftir að ég varði fyrsta skotið fór allur fiðringur úr mér og mér leið vel.“ Jóhann gerði sér lítið fyrir og varði vítakast frá Arnóri Snæ Óskarssyni. Fram vann að lokum leikinn og fagnaði sjö marka sigri, 47-40 í miklum markaleik. Ekki nóg með að Jóhann væri að mæta sínu gamla félagi því hinum megin á hliðarlínunni var faðir hans, Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals. „Það var auðvitað smá extra að spila á móti pabba. Við ræðum mikið um handbolta á heimilinu en ég vildi bara vera faglegur í tengslum við leikinn. Hann ræddi ekkert um Valsliðið við mig og ég ekki Framliðið við hann.“ Leið Jóhanns í markið hefur verið óvenju hröð. Hann tók ekki endanlega ákvörðun um að gerast markvörður fyrr en sumarið 2025 þegar 3. flokkur Vals hélt í keppnisferð til Frakklands. „Ég var beðinn af þjálfarateymi Vals, Heimi Ríkarðssyni og Baldvini Fróða Haukssyni, að vera í marki á mótinu þar sem ég hafði aðeins æft mark á tímabilinu.“ Valsmenn enduðu í öðru sæti á mótinu og Jóhann var valinn markvörður mótsins. „Eftir mótið ákvað ég að halda áfram í marki þar sem mér fannst þetta mjög skemmtilegt.“ Rúmu ári síðar er hann kominn með sinn fyrsta leik í efstu deild undir beltið, fyrr en hann hafði sjálfur gert ráð fyrir. „Nei, ég var ekki endilega að búast við því svona snemma,“ sagði Jóhann sem er spenntur fyrir framhaldinu með Fram. „Tímabilið leggst mjög vel í mig. Við erum með góðan og breiðan hóp sem ég tel að geti staðið sig vel.“ Framarar hafa byrjað tímabilið á tveimur sigrum en liðið fær ÍBV í heimsókn í 3.umferð Olís-deildar karla á miðvikudaginn klukkan 18:00.Skrítið að koma aftur á Hlíðarenda
Faðir og sonur sitt hvorum megin

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.