Undarlegustu félagaskipti síðari ára
Jón Gautur Foto

Félagaskipti Magnúsar Dags Jónatanssonar frá KA til ÍBV voru til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins þegar farið var yfir eins marks sigur KA gegn Víkingi í 2. umferð Olís-deildar karla.

„Ég skil ekki enn þá að Magnús Dagur hafi fengið að fara frá KA, miðað við leikmannahópinn hjá KA,“ sagði Stymmi klippari.

Sérfræðingurinn sagðist hafa heyrt að þjálfarateymi KA hefði hvorki vitað af málinu né komið að ákvörðuninni.

„Ég hef heyrt þær sögur að þetta mál hafi alfarið farið í gegn án þess að þjálfarateymi KA hafi vitað nokkuð um málið eða getað gert neitt í þessu.“

Guðjón Guðmundsson, Gaupi, tók í sama streng og gekk svo langt að kalla félagaskiptin þau undarlegustu hér á landi um árabil.

„Þetta eru undarlegustu félagaskipti síðari ára. Einfaldlega vegna þess að Magnús Dagur er virkilega góður leikmaður. Hann spilaði mjög vel fyrir KA á síðustu leiktíð. Þetta er leikmaður sem hugsar fyrst og síðast um félaga sína og liðsheildina. Hann er minna að hugsa um sjálfan sig og er kannski ekki að skora mikið, en hann gerir vel fyrir sitt lið.“

Gaupi telur að KA hafi alls ekki mátt við því að missa Magnús Dag, sérstaklega þegar Giorgi Dikhaminja glímir við meiðsli.

„Þetta var leikmaður sem KA mátti alls ekki missa. Einfaldlega vegna þess að þegar hann er farinn og Giorgi Dikhaminja er meiddur þá er engin breidd. Hvernig ætla þeir að gera þetta? Hvernig ætla þeir að leysa málin þegar það verður leikur eftir leik og þeir lenda í vandræðum?“

Þá vakti athygli þáttastjórnenda að samkvæmt tilkynningu KA hafi félagið og Magnús Dagur komist að samkomulagi um starfslok. KA virðist því ekki hafa fengið greiðslu frá ÍBV fyrir leikmanninn.

„Þetta er ekki leikmaður sem er 17. eða 18. leikmaður í hópnum. Þetta er fyrsti leikmaður inn af bekk og tímabilið er byrjað. Þarna þurfa KA-menn að þora að tjá sig um þetta mál. Þetta er lykilmaður í liðinu.“

Einnig var bent á að KA hefði fjárfest myndarlega í leikmannahópnum með komu Ágústs Elí Björgvinssonar, Bjarna Ófeigs Valdimarssonar, Dags Gautasonar og tveggja erlendra leikmanna auk þess sem Dagur Árni Heimisson sneri aftur frá Val.

„Þú ert að fjárfesta í liðinu til að ná árangri og síðan gera þeir bara starfslokasamning við lykil leikmann eftir eina umferð.“

Nánar var rætt um málið í nýjasta þætti Handkastsins en umræðan um félagaskiptin hefst þegar um tíu mínútur eru liðnar af þættinum. En þar er rætt um að Handkastið hafi heyrt af ósætti innan KA að Dagur Árni Heimisson hafi verið sóttur heim eftir misheppnað tímabil hjá Val á síðustu leiktíð en faðir Dags Árna, Heimir Árnason er kominn í þjálfarateymi KA.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top