Þorsteinn Leó Gunnarsson, leikmaður Porto og íslenska landsliðsins, verður frá keppni næstu tvo til þrjá mánuði eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum ökklameiðslum í leik liðsins gegn Veszprém í 1. umferð Meistaradeildar Evrópu í síðustu viku. Þorsteinn Leó hefur þegar gengist undir aðgerð vegna meiðslanna og staðfesti í samtali við Handkastið að reiknað sé með að hann verði frá keppni næstu tvo til þrjá mánuði. Þorsteinn sleit liðband í ökklanum og varð jafnframt fyrir rifu á syndesmosis-liðböndunum, sem tengja saman sköflung og dálk rétt fyrir ofan ökklann. Fram undan er því endurhæfing hjá Þorsteini áður en hann getur snúið aftur á handboltavöllinn. Atvikið var nokkuð klaufalegt. Liðsfélagi Þorsteins, Guilherme Borges, féll ofan á hann þegar Porto var í vörn gegn Veszprém. Við það snerist ökklinn illa og varð Þorsteinn að yfirgefa völlinn. Meiðslin eru mikið áfall fyrir Þorstein og Porto sem leika í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en liðið vann RK Partizan á heimavelli í gær með fjórum mörkum, 32-28. Miðað við áætlaðan tíma frá keppni gæti Þorsteinn Leó snúið aftur á völlinn í nóvember eða desember gangi endurhæfingin samkvæmt áætlun og því ætti hann að vera orðinn leikfær fyrir heimsmeistaramótið í janúar á næsta ári.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.