
Aganefnd HSÍ hefur frestað úrskurði í máli Sæþórs Arnar Garðarssonar, leikmanns ÍBV 2, um sólarhring. Hann fékk útilokun með skýrslu í bikarleik liðsins gegn Herði síðastliðinn laugardag og dómarar töldu brotið falla undir reglu 8:6 b). Aganefnd telur brotið geta varðað lengra banni en einum leik. ÍBV hefur fengið kost á að skila inn athugasemdum áður en endanlegur úrskurður verður kveðinn upp. Í myndskeiði af atvikinu sést Sæþór fyrst brjóta á Pétri Þór Jónssyni, leikmanni Harðar. Pétur liggur í gólfinu þegar Sæþór gengur að honum og virðist reka hnéð í andlit hans áður en hann gengur yfir hann. Ekki sést nægilega skýrt á myndskeiðinu hvort Sæþór stígur einnig ofan á Pétur. Pétur heldur um andlitið eftir atvikið. Hann skoraði fimm mörk í leiknum. Sæþór virtist undrandi þegar dómarar sýndu honum rauða spjaldið. Liðsfélagar hans mótmæltu dómnum þó ekki, miðað við það sem sést á myndskeiðinu. ÍBV 2 leikur eingöngu í Powerade-bikarnum og er komið í 16-liða úrslit. Dregið verður í þá umferð á morgun. Verði Sæþór úrskurðaður í leikbann gæti það því haft áhrif á þátttöku hans í næsta bikarleik liðsins. Myndskeið af brotinu má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.