Dregið var í 16-liða úrslit Powearde bikars karla nú í hádeginu. Þetta eru liðin sem mætast í þeim viðureignum. Fimm Olís deildar slagir verða í 16 liða úrslitunum að þessu sinni. HK og Afturelding mætast í enn eitt skiptið í Powerade-bikarnum, FH fær Fram í heimsókn, Selfoss og Valur mætast á Selfossi, Víkingar fá KA í heimsókn og þá mætast Haukar og Stjarnan á Ásvöllum. ÍBV B fær Þór í heimsókn alla leið frá Akureyri. Viðureignirnar í 16-liða úrslitunum: HK - Afturelding
ÍBV B - Þór
FH - Fram
Hvíti Riddarinn - Grótta
Selfoss - Valur
Víkingur - KA
Haukar - Stjarnan
ÍR - ÍBV

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.