Juri Knorr gengur til liðs við Paris Saint-Germain sumarið 2027. Franska félagið staðfesti í dag að þýski landsliðsmaðurinn hefði samið til ársins 2030. Knorr yfirgefur danska félagið, Álaborg ári áður en samningur hans átti að renna út. Danska félagið lýsir sölunni sem þeirri stærstu í sögu félagsins, en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp. „Hann hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn besti miðjumaður Evrópu. Leiksýn hans, markaskorun og leiðtogahæfileikar verða okkur mikill styrkur,“ segir Thierry Omeyer, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar PSG, í tilkynningu félagsins. Knorr er fæddur árið 2000 og lék meðal annars með GWD Minden og Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi áður en hann gekk til liðs við Álaborg. Hann varð þýskur bikarmeistari með Rhein-Neckar Löwen árið 2023. Álaborg hefur gefið það út að félagið hafi þegar tryggt sér eftirmann Knorrs og muni kynna hann á næstu dögum. Danski miðillinn Rygtebørs telur líklegt að það sé Færeyingurinn Elias Ellefsen á Skipagøtu, leikmaður THW Kiel. Álaborg hefur ekki staðfest það.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.