Nielsen bestur á HM félagsliða – Þrír leikmenn Barcelona í úrvalsliðinu
IHF

Danski markvörðurinn Emil Nielsen var valinn verðmætasti leikmaður HM félagsliða í handbolta sem lauk í Egyptalandi í kvöld. Nielsen lék lykilhlutverk þegar Veszprém vann Barcelona, 42–33, í úrslitaleiknum.

Þrátt fyrir tapið á Barcelona þrjá leikmenn í úrvalsliði mótsins. Sergey Hernández var valinn besti markvörðurinn, Ian Barrufet besti vinstri hornamaðurinn og Ludovic Fàbregas besti línumaðurinn.

Veszprém átti tvo útileikmenn í úrvalsliðinu, Ahmed Hesham í vinstri skyttustöðunni og Yanis Lenne í hægra horninu. Mohamed Hesham hjá Al Ahly var valinn besti miðjumaðurinn og Youssef Ahmed hjá Zamalek besta hægri skyttan.

Hugo Descat, vinstri hornamaður Veszprém, var markahæsti leikmaður mótsins. Hann skoraði meðal annars tíu mörk í úrslitaleiknum gegn Barcelona.

Úrvalslið HM félagsliða:

  • Markvörður: Sergey Hernández, Barcelona.
  • Vinstra horn: Ian Barrufet, Barcelona.
  • Vinstri skytta: Ahmed Hesham, Veszprém.
  • Miðjumaður: Mohamed Hesham, Al Ahly.
  • Hægri skytta: Youssef Ahmed, Zamalek.
  • Hægra horn: Yanis Lenne, Veszprém.
  • Línumaður: Ludovic Fàbregas, Barcelona.

Verðmætasti leikmaður: Emil Nielsen, Veszprém.
Markahæsti leikmaður: Hugo Descat, Veszprém.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top