Bjarni Ófeigur ekki með KA næstu vikurnar – Gæti misst sjón varanlega
Egill Bjarni Friðjónsson

Bjarni Ófeigur Valdimarsson, einn af lykilmönnum KA, verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa orðið fyrir augnáverka í leik liðsins gegn Val í Olís-deild karla í síðustu viku.

Bjarni Ófeigur var ekki í leikmannahópi KA þegar liðið vann ÍBV með sex mörkum 31-25 í 5. umferð Olís-deildarinnar í vikunni. Ástæðan er högg sem hann fékk á augað í leiknum gegn Val í umferðinni á undan.

Bjarni leitaði til augnlæknis daginn eftir leikinn vegna skertrar sjónar og kom þá í ljós að hann hafði orðið fyrir áverka á augnbotninum. Honum hefur verið gert að halda sig frá allri hreyfingu næstu vikurnar á meðan hann er að jafna sig.

„Málið er að ég má ekki fá púlsinn upp því þá getur verið hætta á blæðingu inn í auganu út af þrýstingi og gæti þá misst sjón varanlega,“ sagði Bjarni.

Bjarni Ófeigur gerir ráð fyrir að þurfa að vera frá æfingum í að minnsta kosti þrjár til fjórar vikur í viðbót. Það er því ljóst að KA verður án eins síns mikilvægasta leikmanns í næstu leikjum Olís-deildarinnar.

KA er með átta stig eftir fimm leiki en eini tapleikurinn kom gegn Þór á heimavelli í 3.umferðinni. Ljóst er að Bjarni Ófeigur verður ekki með KA í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins þegar liðið heimsækir Víking heim næstkomandi föstudag.

Þá má gera ráð fyrir að hann missi af næstu deildarleikjum KA gegn Stjörnunni og Aftureldingu og mögulega gegn FH í lok mánaðarins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top