Það gæti orðið mikið um að vera á leikmannamarkaðnum í þýsku Bundesligunni framundan. Fjöldi þekktra leikmanna er með samning sem rennur út að loknu tímabilinu og hjá sumum þeirra gæti jafnvel komið til greina að leggja skóna á hilluna. Handball-World hefur tekið saman 15 áhugaverðustu samningsmálin í Bundesligunni fyrir sumarið 2027 og þar er að finna fjölmörg stór nöfn. Þess má til gamans geta að Arnar Freyr Arnarsson er ekki á listanum en samningur hans við Flensburg rennur út næsta sumar. Hér má sjá lista Handball-World: Domagoj Duvnjak – THW Kiel Króatíski landsliðsmaðurinn fyrrverandi er orðinn 38 ára og því eðlilega spurningarmerki við hvort tímabilið 2026/27 verði hans síðasta. Duvnjak hefur um árabil verið einn af lykilmönnum Kiel og einn þekktasti leikmaður Bundesligunnar. Harald Reinkind – THW Kiel Norðmaðurinn hefur leikið með Kiel frá árinu 2018 en núverandi samningur hans rennur út næsta sumar. Reinkind verður 35 ára í ágúst á næsta ári og framtíð hans hjá félaginu er óljós. Hendrik Pekeler – THW Kiel Þriðji reynslumikli leikmaður Kiel sem gæti verið á förum. Pekeler sneri aftur til félagsins árið 2018 og hefur verið mikilvægur hlekkur í liðinu síðan. Aldurinn gerir það einnig að verkum að spurningar eru uppi um hversu lengi hann hyggst halda áfram. Lukas Laube – THW Kiel Svissneski línumaðurinn kom til Kiel sumarið 2025, meðal annars vegna meiðsla Pekeler. Laube er 26 ára og því í allt annarri stöðu en reynsluboltarnir þrír hjá félaginu, en samningur hans rennur sömuleiðis út næsta sumar. Andreas Palicka – Füchse Berlin Sænski markvörðurinn gekk til liðs við Füchse fyrir yfirstandandi tímabil eftir brotthvarf Dejan Milosavljev. Palicka er fertugur og samdi aðeins til eins árs. Það verður því áhugavert að sjá hvort hann heldur áfram í Berlín eða hvort ferlinum fari að ljúka. Fabian Wiede – Füchse Berlin Eftir að Paul Drux lagði skóna á hilluna er Wiede síðasti leikmaðurinn sem eftir stendur af eldri kjarna Füchse. Hann verður 33 ára í febrúar og samningur hans rennur út eftir tímabilið. Luca Witzke – Flensburg Dvöl Witzke hjá Flensburg hefur einkennst af meiðslum og honum hefur reynst erfitt að ná stöðugleika. Þegar hann hefur verið heill heilsu hefur spiltíminn heldur ekki alltaf verið eins mikill og hann hefði kosið. Samningurinn rennur út næsta sumar. Ille Forsell Schefvert – Melsungen Svíinn hefur leikið í Bundesligunni frá árinu 2017. Eftir veru hjá Wetzlar og Rhein-Neckar Löwen gekk hann til liðs við Melsungen árið 2025 og samningur hans þar rennur út næsta sumar. Erik Balenciaga – Melsungen Spænski leikstjórnandinn hefur sýnt hversu mikilvægur hann getur verið Melsungen þegar hann er heill. Breytingar verða þó á þjálfarateymi félagsins eftir tímabilið þegar Jaron Siewert tekur við af Roberto García Parrondo og gæti það haft áhrif á leikmannahópinn. Dainis Kristopans – Melsungen Hinn 2,15 metra hái Lettinn kom til Melsungen árið 2023 undir stjórn Parrondo. Kristopans verður 36 ára í september á næsta ári og samningur hans rennur út eftir tímabilið. August Pedersen – Hannover-Burgdorf Koma norska hornamannsins til Hannover sumarið 2025 hefur reynst afar vel. Pedersen hefur fest sig í sessi sem einn helsti markaskorari liðsins en núverandi samningur hans rennur út næsta sumar. Leif Tissier – Hannover-Burgdorf Tissier kom einnig til Hannover árið 2025 eftir að hafa leikið allan sinn feril á Hamburg-svæðinu. Miklar breytingar verða á leikmannahópi Hannover og framtíð Tissier er meðal þeirra mála sem félagið þarf að leysa. Daniel Pettersson – Magdeburg Sænski hornamaðurinn hefur verið hjá Magdeburg frá árinu 2016. Pettersson verður 35 ára í maí og samningur hans rennur út eftir tímabilið. Félagi hans til margra ára í hægra horninu, Tim Hornke, lagði skóna á hilluna síðasta sumar. Kentin Mahé – Rhein-Neckar Löwen Frakkinn gekk til liðs við Rhein-Neckar Löwen í sumar eftir að dvöl hans hjá Gummersbach lauk. Mahé samdi aðeins til eins árs og verður 36 ára í maí. Hann á að baki glæstan feril og hefur meðal annars orðið Ólympíu-, heims- og Evrópumeistari með Frakklandi. Silvio Heinevetter – Eisenach Markvarðargoðsögnin verður 42 ára síðar í þessum mánuði. Samningur Heinevetter við Eisenach rennur út næsta sumar og því gæti verið stutt í að einn litríkasti markvörður þýska handboltans leggi skóna á hilluna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.