Mørk stefnir á EM þrátt fyrir árekstur við dómara
Alex Nicodim /AFP

Hin 35 ára gamla Nora Mørk er bjartsýn á að verða klár fyrir Evrópumót kvenna í desember þrátt fyrir að hafa ökklabrotnað í leik með Team Esbjerg í síðustu viku. Mørk segir meiðslin mun minni en upphaflega var óttast og reiknar með að snúa aftur á völlinn eftir nokkrar vikur.

Mørk meiddist í leik Team Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni þegar hún lenti í árekstri við dómara. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem rannsóknir leiddu í ljós lítið beinbrot í ökkla.

Nora Mørk flutt á sjúkrahús eftir árekstur við dómara

Í viðtali við norska miðilinn, TV 2 segir Mørk að staðan sé mun betri en hún hafði búist við.

„Þetta gengur vel og er miklu betra en við áttum von á. Brotið er örlítið. Ef ég hefði ekki vitað að þetta væri brot hefði ég líklega þegar reynt að fara aðeins út á völl. Ég held að þetta gangi mjög vel. Svo lengi sem þau vilja hafa mig með er ég mjög örugg með að þetta taki bara nokkrar vikur og þá verði ég komin aftur.“

Mørk missir þó af leikjum Noregs í Golden League síðar í þessum mánuði þar sem liðið mætir Hollandi og Danmörku. Ole Gustav Gjekstad, landsliðsþjálfari Noregs, tilkynnir lokahóp sinn fyrir Evrópumótið 30. nóvember.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top