Haukar eru í níunda sæti á styrkleikalista handboltamiðilsins Handball Planet yfir þau sextán lið sem miðillinn telur sigurstranglegust í Evrópubikar karla á þessu tímabili. Hafnarfjarðarliðið er meðal annars fyrir ofan gríska stórliðið AEK Aþenu, sem varð Evrópubikarmeistari árið 2021 og lék til úrslita í keppninni árið 2025. Haukar eru einnig fyrir ofan slóvenska liðið Gorenje Velenje og pólska liðið Ostrovia Ostrów Wielkopolski. Makedónska liðið Ohrid er í efsta sæti listans en liðið varð Evrópubikarmeistari á síðasta tímabili eftir sigur gegn ungverska liðinu Tatabánya í úrslitum. Haukar hefja leik í Evrópubikarnum um helgina þegar Esch frá Lúxemborg kemur til Íslands og fara báðir leikirnir fram á Ásvöllum um helgina. Annað makedónskt lið, Alkaloid, er í öðru sæti en liðið varð Evrópubikarmeistari árið 2025. Gríska stórliðið Olympiacos er í þriðja sæti, en það tapaði eftirminnilega gegn Val í úrslitum Evrópubikarsins árið 2024. Úlfar Páll Monsi Þórðarson leikur með Alakloid. Tyrkneska stórliðið Besiktas er í fjórða sæti og norska liðið Runar Sandefjord í því fimmta. Haukar komust í átta liða úrslit Evrópubikarsins á síðasta tímabili og hafa byrjað núverandi tímabil af miklum krafti hér heima. Liðið hefur unnið alla sex leiki sína í Olís-deild karla og situr á toppi deildarinnar. Tíu efstu lið styrkleikalistans:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.