Litháinn Gintaras Savukynas, fyrrverandi leikmaður Gróttu/KR og Aftureldingar og fyrrum þjálfari ÍBV, hefur þurft að stíga til hliðar sem þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Bergsøy vegna alvarlegra veikinda. Félagið greindi frá þessu í tilkynningu á samfélagsmiðlum. Gintaras, sem er 55 ára gamall, tók við þjálfun Bergsøy í sumar en hefur nú verið settur í fullt veikindaleyfi um óákveðinn tíma. „Aðalþjálfari okkar, Gintaras Savukynas, er sem stendur í 100% veikindaleyfi vegna alvarlegra veikinda. Það mikilvægasta fyrir Bergsøy Handball núna er að Gintaras fái þann tíma og þá ró sem hann þarf til að ná heilsu," segir í tilkynningu Bergsøy. Í stað Gintaras kemur Peter Pucelj, fyrrverandi þjálfari Bergsøy og tekur tímabundið við þjálfun liðsins. Gintaras er íslenskum handboltaáhugamönnum að góðu kunnur en hann lék með Aftureldingu á árunum 1998 til 2001 og var einn af lykilmönnum liðsins á gullaldartímabili þess. Á sínu fyrsta tímabili með Aftureldingu varð hann þrefaldur meistari þegar Mosfellingar unnu Íslands-, deildar- og bikarmeistaratitilinn tímabilið 1998/99. Hann lék einnig með Gróttu/KR hér á landi áður en hann sneri sér að þjálfun. Gintaras þjálfaði ÍBV á sínum tíma og kom liðinu meðal annars upp í efstu deild. Hann var einnig valinn þjálfari ársins í næstefstu deild. Litháinn hefur síðan átt langan og farsælan þjálfaraferil víða um Evrópu. Hann hefur meðal annars þjálfað Motor Zaporizhzhia í Úkraínu, Riihimäen Cocks í Finnlandi og Meshkov Brest í Hvíta-Rússlandi. Hann er jafnframt landsliðsþjálfari Litháens en hann tók við landsliðinu á ný árið 2022. Gintaras þjálfaði Bergsøy áður á árunum 2013 til 2016 og sneri aftur til félagsins í sumar eftir tíu ára fjarveru. Bergsøy hefur ekki gefið frekari upplýsingar um veikindin eða hvenær Gintaras gæti snúið aftur til starfa.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.