Þrír íslenskir handknattleiksmenn voru í eldlínunni í úrvalsdeildunum í Sviss og Austurríki í gærkvöldi. Óðinn Þór Ríkharðsson og Birgir Már Birgisson fögnuðu báðir sigri í Sviss á meðan Tumi Steinn Rúnarsson og félagar hans í Bärnbach/Köflach gerðu jafntefli í Austurríki. Tumi Steinn Rúnarsson átti fínan leik fyrir Bärnbach/Köflach þegar liðið gerði 30-30 jafntefli gegn Ferlach í austurrísku úrvalsdeildinni. Tumi Steinn skoraði þrjú mörk úr sex skotum og gaf auk þess tíu stoðsendingar í leiknum. Bärnbach/Köflach er með átta stig eftir átta leiki og er í þriðja sæti deildarinnar samkvæmt stöðutöflu sem uppfærð var eftir leikinn. Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði fjögur mörk úr átta skotum þegar Kadetten Schaffhausen vann góðan fjögurra marka útisigur á Wacker Thun, 32-28, í svissnesku úrvalsdeildinni. Kadetten er í öðru sæti deildarinnar með 19 stig eftir ellefu leiki, einu stigi á eftir toppliði Kriens-Luzern sem hefur leikið einum leik færra. Birgir Már Birgisson skoraði fimm mörk þegar GC Amicitia Zürich vann öruggan níu marka sigur á RTV Basel, 38-29, í sömu deild. Zürich er í sjöunda sæti svissnesku úrvalsdeildarinnar með átta stig eftir tíu leiki. Liðið hefur unnið fjóra leiki á tímabilinu en tapað sex.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.