Frá Flensburg til besta vinarins í Noregi
Philipp Szyza / AFP

Norski handknattleiksmaðurinn Kent Robin Tønnesen mun ganga til liðs við norska úrvalsdeildarliðið Fjellhammer næsta sumar þegar samningur hans við þýska stórliðið Flensburg-Handewitt rennur út.

Félagaskiptin voru staðfest fyrr í þessum mánuði en í nýju viðtali á heimasíðu norska handknattleikssambandsins kemur fram að Tønnesen og Kristian Bliznac, þjálfari Fjellhammer, séu nánir vinir til margra ára.

Þeir léku saman hjá sænska stórliðinu Sävehof og síðar hjá þýska liðinu Wetzlar. Vináttan nær langt út fyrir handboltavöllinn en Tønnesen var meðal annars svaramaður Bliznac þegar sá síðarnefndi gekk í hjónaband.

Tønnesen hefur leikið með nokkrum af stærstu félagsliðum Evrópu á ferlinum, þar á meðal Füchse Berlin, Veszprém, Pick Szeged og Flensburg.

Nú er hann hins vegar á leið heim til Noregs þar sem hans bíður óvenjulegt hlutverk hjá Fjellhammer. Auk þess að leika með liðinu mun hann starfa innan stjórnsýslu félagsins og taka þátt í að efla starfsemi þess utan vallar.

Bliznac bindur miklar vonir við komu Tønnesen og telur að reynsla hans muni nýtast félaginu bæði innan vallar og utan.

„Við vonum að Kent Robin muni hafa mikil áhrif. Hann verður mörgum strákunum mikil hjálp og mun lyfta öllum hópnum. Kent Robin veit hvað þarf til og það verður hlustað á hann,“ sagði Bliznac í samtali við norska handknattleikssambandið.

Þjálfarinn bætti við að reynsla Tønnesen úr atvinnumennsku hjá stærstu félagsliðum Evrópu gæti einnig hjálpað Fjellhammer að taka næstu skref í uppbyggingu félagsins. Fjellhammer hefur vakið athygli fyrir öflugan varnarleik á tímabilinu og vonast forráðamenn félagsins til að koma Tønnesen verði mikil lyftistöng fyrir liðið á næstu árum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top