Sænski landsliðsmaðurinn Max Darj mun yfirgefa þýska stórliðið Füchse Berlin næsta sumar eftir fimm ára dvöl hjá félaginu. Darj, sem er fyrirliði Berlínarliðsins, hefur nú tjáð sig um ákvörðun félagsins og viðurkennir að hafa orðið fyrir vonbrigðum. Füchse Berlin tilkynnti á sunnudag að félagið myndi ekki nýta ákvæði um eins árs framlengingu á samningi Darj, sem rennur út sumarið 2027. Hinn 35 ára gamli línumaður hefur verið lykilmaður hjá félaginu frá því hann kom frá Bergischer HC árið 2022 og tók við fyrirliðabandinu af Paul Drux árið 2024. Í samtali við þýska fjölmiðla eftir 36-30 sigur Füchse Berlin gegn Wetzlar á sunnudag sagði Darj að hann hefði sjálfur viljað halda áfram hjá félaginu. „Ég vildi auðvitað halda áfram, það er engin spurning. Það var mín ósk,“ sagði Darj. Hann greindi jafnframt frá því að hafa fengið fréttirnar fyrir nokkrum vikum og að fyrstu viðbrögð hans hefðu verið vonbrigði og sorg. Hann kvaðst þó virða ákvörðun félagsins. Nicolej Krickau, þjálfari og íþróttastjóri Füchse Berlin, fór fögrum orðum um Svíann og sagði hann hafa verið gríðarlega mikilvægan bæði innan vallar og utan. Darj hefur meðal annars orðið þýskur meistari og bikarmeistari með Füchse Berlin en framtíð hans er enn óráðin. Hann ætlar sér þó að halda áfram að spila handbolta og útilokar hvorki áframhaldandi veru í Þýskalandi né að færa sig til annars lands. Füchse Berlin stendur frammi fyrir talsverðum breytingum á leikmannahópnum næsta sumar. Mijajlo Marsenic er einnig á förum en stórstjörnurnar Dika Mem og Simon Pytlick eru væntanlegar til félagsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.