Sigurganga Hauka heldur áfram
J.L.Long

Haukar héldu sigurgöngu sinni áfram í Olís-deild karla í kvöld þegar þeir unnu stórsigur á HK á heimavelli, 37-22. Freyr Aronsson fór fyrir markaskorun Hauka með tólf mörk.

HK byrjaði betur og komst í 2-4 en Haukar svöruðu með fjórum mörkum í röð og tóku forystuna. Heimamenn náðu síðan góðum kafla þegar þeir breyttu stöðunni úr 9-7 í 14-7 með fimm mörkum í röð. Í hálfleik var forskot Hauka sex mörk, 18-12.

Haukar héldu áfram að bæta við forskotið eftir hlé og komust í 22-13. Munurinn varð fljótlega tíu mörk, 25-15, og HK tókst ekki að ógna forystu heimamanna. Haukar skoruðu síðustu fjögur mörk leiksins og fögnuðu að lokum fimmtán marka sigri.

Freyr var markahæstur Hauka með tólf mörk, Össur Haraldsson skoraði sex og Skarphéðinn Ívar Einarsson fjögur. Birkir Snær Steinsson, Ólafur Ægir Ólafsson og Sigurður Jefferson Guarino bættu við þremur mörkum hver.

Aron Rafn Eðvarðsson var frábær í marki Hauka í fyrri hálfleik og var með 50% markvörslu.

Hjá HK var Andri Þór Helgason markahæstur með fjögur mörk. Bjarki Freyr Sindrason, Gunnar Dan Hlynsson og Kári Tómas Hauksson skoruðu þrjú mörk hver.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top