Flensburg staðfestir áhuga á Emil Nielsen
Mohamed Tageldin /AFP

Danski landsliðsmarkvörðurinn Emil Nielsen hefur verið orðaður við þýska stórliðið Flensburg-Handewitt en Ljubomir Vranjes, íþróttastjóri félagsins, segir engar viðræður standa yfir um félagaskipti markvarðarins. Hann viðurkennir þó að Flensburg myndi hafa mikinn áhuga á Nielsen ef tækifæri gæfist til að fá hann til félagsins.

Nielsen, sem leikur með ungverska stórliðinu Veszprém, hefur verið orðaður við þýsku Bundesliguna að undanförnu. Vangaveltur um framtíð hans tengjast meðal annars mögulegum breytingum á skattalöggjöf í Ungverjalandi sem gætu haft áhrif á fjárhagslega stöðu félagsliða þar í landi.

Vranjes var spurður út í orðróminn í samtali við þýska miðilinn handball-world.news og gerði lítið úr því að félagaskipti væru yfirvofandi.

„Þetta er orðrómur. Ég veit ekki hvaðan hann kemur. Við höfum auðvitað rætt við umboðsmann hans en það er langt síðan,“ sagði Vranjes sem útilokaði þó ekki að Flensburg myndi blanda sér í baráttuna um danska markvörðinn ef hann yrði fáanlegur.

„Þetta snýst ekki bara um Veszprém heldur Ungverjaland almennt. Ef það opnast möguleiki á að fá hann myndu tíu félög standa í biðröð til að semja við hann,“ sagði Vranjes.

Hann fór jafnframt fögrum orðum um Nielsen og sagði hann vera einn besta markvörð heims um þessar mundir. Það væri því fráleitt að halda því fram að Flensburg hefði engan áhuga á að fá slíkan leikmann í sínar raðir.

Flensburg gæti haft ýmislegt með sér í mögulegri baráttu um undirskrift Nielsen. Félagið er staðsett skammt frá dönsku landamærunum og Vranjes telur jafnframt að samsetning leikmannahópsins og framtíðaráform félagsins geti verið aðlaðandi fyrir leikmenn í fremstu röð.

Hann bendir á að Flensburg sé með góða blöndu af reyndum leikmönnum og ungum framtíðarstjörnum sem eigi mörg ár eftir á hæsta stigi. Vranjes telur þó að framtíð Nielsen muni fyrst og fremst ráðast hjá Veszprém, sem hefur enn möguleika á að halda danska landsliðsmarkverðinum innan sinna raða.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top