Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins segir samkeppnina um sæti í landsliðshópnum fyrir Evrópumótið í desember mikla. Hann viðurkennir að verkefnið í Póllandi um helgina hafi gert valið á lokahópnum enn erfiðara. Íslenska landsliðið lék tvo vináttulandsleiki gegn Póllandi í síðustu viku. Ísland vann fyrri leikinn 35-32 en tapaði þeim síðari með minnsta mun, 35-34. Arnar var ánægður með frammistöðu liðsins í leikjunum og segir verkefnið hafa gefið þjálfarateyminu mikilvæg svör fyrir Evrópumótið. „Þetta svaraði alveg fullt af spurningum. Heilt yfir er ég bara mjög ánægður með frammistöðu leikmannanna í þessu verkefni. Við viljum hafa samkeppni og hún er sannarlega til staðar. Ef eitthvað er þá er hausverkurinn við að velja hópinn fyrir EM meiri eftir þessa viku en hann var áður,“ sagði Arnar í samtali við RÚV. Arnar nýtti báða leikina til að dreifa spilatímanum á leikmenn hópsins og komu allir leikmenn við sögu í verkefninu. Landsliðsþjálfarinn gerir ráð fyrir að velja 18 leikmenn til þátttöku á Evrópumótinu þrátt fyrir að aðeins 16 leikmenn geti verið á leikskýrslu í hverjum leik. Arnar fagnar sérstaklega þeirri þróun að sífellt fleiri íslenskar landsliðskonur séu farnar í atvinnumennsku erlendis. Nokkrar landsliðskonur héldu utan í sumar. Lovísa Thompson gekk til liðs við Benfica í Portúgal, Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín samdi við Thüringer í Þýskalandi, Katrín Tinna Jensdóttir fór til HH Elite í Danmörku og Lilja Ágústsdóttir gekk til liðs við Sachsen Zwickau í Þýskalandi. Fyrir voru meðal annars Elín Klara Þorkelsdóttir hjá Sävehof í Svíþjóð og Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir hjá Blomberg-Lippe í Þýskalandi. Þá leikur Thea Imani Sturludóttir með Craiova í Rúmeníu og Dana Björg Guðmundsdóttir með Larvik í Noregi en hún var ekki í landsliðshópnum að þessu sinni en hún hefur verið að glíma við meiðsli. Arnar telur þessa þróun mikilvæga fyrir framtíð íslenska landsliðsins. „Þessi þróun er gríðarlega jákvæð og við þurfum bara að vinna vel áfram í því að koma fleiri stelpum út í sterkari deildir og í það umhverfi að geta stundað handbolta í fullri vinnu,“ sagði Arnar við RÚV. Hann segir greinilegt að atvinnumennskan hafi haft jákvæð áhrif á þær leikmenn sem héldu utan í sumar og að þær hafi tekið framförum á undanförnum mánuðum. Thea Imani Sturludóttir lék sinn 100. A-landsleik þegar Ísland mætti Póllandi á laugardaginn. Thea gekk til liðs við rúmenska félagið Craiova í sumar eftir að hafa leikið með Val. Hún glímdi við meiðsli á síðustu leiktíð og var í litlu hlutverki með Val hér heima í fyrra en Arnar segir hana vera að nálgast sitt besta form á ný. „Thea er alltaf að verða sterkari og sterkari og virðist vera að komast yfir meiðslin sem hún var að glíma við áður. Hún er að vaxa greinilega með hverri vikunni sem hún er þarna úti í Rúmeníu,“ sagði Arnar. Hann hrósaði Theu jafnframt fyrir að hafa náð þeim merka áfanga að leika hundrað landsleiki og sagði hana gríðarlega mikilvæga fyrir íslenska liðið. Ísland leikur tvo síðustu undirbúningsleiki sína fyrir Evrópumótið gegn Svíþjóð í Malmö og Halmstad í lok nóvember. Arnar segir að þjálfarateymið hafi fengið mikið út úr leikjunum gegn Póllandi, sérstaklega varnarlega, þar sem íslenska liðið þurfti meðal annars að takast á við sóknarleik Pólverja með sjö útileikmönnum. Ísland hefur leik á Evrópumótinu 3. desember og leikur í riðli með Ungverjalandi, Svartfjallalandi og Slóveníu. Riðillinn verður leikinn í Oradea í Rúmeníu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.