Danska stórliðið Odense Håndbold hefur fengið gríðarlegan áhuga á lausu starfi aðalþjálfara félagsins eftir að Jakob Vestergaard var látinn taka pokann sinn fyrr í þessum mánuði. Að sögn Lasse Honoré, framkvæmdastjóra Odense, höfðu hátt í 200 einstaklingar samband við félagið vegna starfsins. Odense hefur nú þrengt hóp umsækjenda og aðeins þrír þjálfarar koma enn til greina. „Það voru fimm sem komust áfram og nú erum við komin niður í þrjá sem við erum í beinum viðræðum við. Við erum farin að ræða fjárhagsleg atriði og hvenær viðkomandi gæti tekið til starfa,“ sagði Honoré í samtali við Fyens Stiftstidende. Forsvarsmenn félagsins segjast leita sérstaklega að þjálfara með norrænan bakgrunn en félagið vill finna rétta einstaklinginn til að stýra liðinu til framtíðar. Upphaflega er gert ráð fyrir að nýr þjálfari taki við sumarið 2027. Forráðamenn Odense skoða þó einnig hvort hægt verði að fá viðkomandi til starfa strax um áramótin. Mark Strandgaard sem áður var aðstoðarþjálfari liðsins tók tímabundið við stjórninni eftir brottrekstur Vestergaard. Honoré segir forráðamenn félagsins ánægða með störf Strandgaard og því sé engin sérstök pressa á að ráða nýjan þjálfara strax. „Mark stendur sig frábærlega og það gerir starfsfólkið í kringum hann líka. Ég er alveg rólegur yfir því ef niðurstaðan verður sú að hann klári tímabilið,“ sagði Honoré. Vestergaard tók við Odense sumarið 2025 og stýrði liðinu meðal annars til sigurs í dönsku bikarkeppninni. Hann var hins vegar rekinn í byrjun október eftir að stjórn félagsins komst að þeirri niðurstöðu að spilamennska og árangur liðsins hefðu ekki staðist væntingar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.