Andreas Wolff, landsliðsmarkvörður Þýskalands og leikmaður Kiel, er orðaður við Gummersbach samkvæmt þýska miðlinum Bild. Á sama tíma er spænski markvörðurinn Nacho Biosca orðaður frá Gummersbach til Montpellier. Samningur Wolff við Kiel rennur út sumarið 2028 en samkvæmt fréttum gæti hann skipt um félag strax sumarið 2027. Gummersbach er talið líklegasti áfangastaður hans þótt fleiri þýsk félög séu nefnd til sögunnar. Spánverjinn, Biosca gekk til liðs við Gummersbach frá Nantes síðastliðið sumar og samdi til ársins 2028. Hann hafði áður verið orðaður við Montpellier og gætu því orðið breytingar á markvarðastöðunni hjá þýska félaginu ef orðrómarnir ganga eftir. Guðjón Valur Sigurðsson stýrir Gummersbach og með liðinu leika Elliði Snær Viðarsson, Garðar Ingi Sindrason og Teitur Örn Einarsson. Orri Freyr Þorkelsson gengur í raðir félagsins næsta sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.