Herrem gæti snúið óvænt aftur í norska landsliðið
Sameer Al-Doumy / AFP)

Norska handboltagoðsögnin Camilla Herrem gæti verið á leiðinni aftur í norska landsliðið en hún er á 35 manna lista Norðmanna fyrir Evrópumót kvenna sem hefst í desember.

Herrem, sem er fertug, tilkynnti að hún væri hætt að leika með norska landsliðinu eftir Evrópumótið árið 2024. Hún hefur hins vegar samþykkt að vera tiltæk fyrir mótið í desember eftir að Ole Gustav Gjekstad, landsliðsþjálfari Noregs, hafði samband við hana.

Herrem staðfesti þetta í samtali við norska TV 2 en tók jafnframt fram að það þýddi ekki endilega að hún væri að snúa aftur í landsliðið.

„Ég var spurð hvort það mætti setja mig á listann og ég samþykkti það. Það er bara til öryggis, ekkert meira en það,“ sagði Herrem.

Gjekstad staðfesti einnig að hann hefði sjálfur óskað eftir því að Herrem yrði á listanum.

„Hún samþykkti að vera á bráðabirgðalistanum að minni beiðni. Það þýðir ekki endilega að hún muni snúa aftur í landsliðið,“ sagði Gjekstad.

Herrem á að baki glæsilegan landsliðsferil. Hún hefur leikið 332 landsleiki fyrir Noreg og skorað í þeim 951 mark. Aðeins Katrine Lunde hefur leikið fleiri landsleiki fyrir norska kvennalandsliðið.

Herrem greindist með brjóstakrabbamein á síðasta ári en sneri aftur á handboltavöllinn tveimur mánuðum eftir að hún greindi opinberlega frá veikindunum. Hún leikur með norska félaginu Sola.

Gjekstad tilkynnir lokahóp Noregs fyrir Evrópumótið í dag. Þá kemur í ljós hvort Herrem verði meðal þeirra leikmanna sem fara með norska landsliðinu á mótið.

Noregur leikur í riðli með Rúmeníu, Sviss og Norður-Makedóníu á Evrópumótinu sem hefst 3. desember.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top