Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins VfL Gummersbach, verður án sænsku stórskyttunnar Nikola Roganović næstu vikurnar vegna meiðsla. Þetta kemur fram í frétt þýska handboltamiðilsins handball-world.news. Roganović, sem er tvítugur, hefur verið einn mikilvægasti sóknarmaður Gummersbach á tímabilinu og er markahæsti leikmaður félagsins í þýsku Bundesligunni. Svíinn hefur skorað 72 mörk í fyrstu níu deildarleikjum Gummersbach, eða átta mörk að meðaltali í leik. Meiðslin koma á afar óheppilegum tíma fyrir Guðjón Val og félaga, sem unnu frábæran 31-30 sigur gegn toppliði Flensburg um síðustu helgi. Roganović fór á kostum í þeim leik og skoraði tólf mörk þegar Gummersbach varð fyrst liða til að leggja Flensburg að velli í þýsku Bundesligunni á tímabilinu. Hann hefur vakið mikla athygli síðan hann gekk til liðs við Gummersbach frá sænska félaginu HK Malmö í sumar. Meðal annars skoraði hann fimmtán mörk í 31-31 jafntefli gegn Melsungen fyrr á tímabilinu. Gummersbach hefur átt misjöfnu gengi að fagna í upphafi tímabilsins en liðið er með tólf stig eftir tíu deildarleiki og situr í sjöunda sæti. Þrír Íslendingar leika með Gummersbach, þeir Elliði Snær Viðarsson, Teitur Örn Einarsson og Garðar Ingi Sindrason. Gummersbach hafði betur gegn Göppingen í gær, 26-33 þar sem Elliði Snær skoraði fimm mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.