Það voru heldur betur áhugaverð dómaramistök sem áttu sér stað í Skógarselinu í gær þegar ÍR og Selfoss mættust í 7.umferð Olís-deildar kvenna en liðin skildu jöfn 25-25 í hörku spennandi leik þar sem litlu munaði á liðunum nær allan leikinn. Magnús Kári Jónsson annar af dómurum leiksins gerði hinsvegar áhugaverð mistök í stöðunni 23-22 fyrir ÍR en í aðdraganda 22. marks Selfoss sem Harpa Valey Gylfadóttir skoraði braut Karen Tinna Demian á Hörpu Valey. BÆÐI LIÐ FENGU TÆKIFÆRI TIL AÐ STELA SIGRINUM Í LOKIN Í stað þess að Karen Tinna hafi fengið brottvísunina þá gaf Magnús Kári, landsliðskonunni, Matthildi Lilju Jónsdóttur hinsvegar tvær mínútur fyrir brot sem hún var víðsfjarri. Skiljanlega var Matthildur undrandi yfir ákvörðuninni og reyndi að fá ákvörðun Magnúsar breyttum. Magnús Kári var hinsvegar viss í sinni sök og kokhraustur enda var hann alls ekki tilbúinn að hlusta á rök Matthildar Lilju sem átti mikið til síns máls þegar hún reyndi að útskýra sitt mál. Ætli Magnús Kári hafi hugsað á þeim tíma, að hann væri nú ekki líklegur að gera mistök sem þessi. Rætt var um atvikið í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. Það fór svo að Matthildur Lilja þurfti að sitja út tveggja mínútna brottvísun án þess að hafa gert nokkuð skapaðan hlut. Hvort ákvörðun Magnúsar Kára hafi haft áhrif á úrslit leiksins skal ekki segja - en vonandi að þetta verði hún víti til varnaðar í framtíðinni. Dómarar, geta jú gert mistök eins og allir aðrir. Það getur hinsvegar reynst dómurum erfitt að viðurkenna mistök og það sást bersýnilega í þessu atviki sem hægt er að sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.