Þessar fara á EM í Rúmeníu
ADA

Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, hefur tilkynnt 17 manna hóp sinn fyrir Evrópumótið sem fram fer 3.–20. desember.

Ísland leikur í A-riðli í Oradea í Rúmeníu og mætir þar Slóveníu, Svartfjallalandi og Ungverjalandi. Fyrsti leikurinn er gegn Slóveníu fimmtudaginn 3. desember klukkan 16:30. Ísland mætir síðan Svartfjallalandi laugardaginn 5. desember klukkan 16:30 og Ungverjalandi mánudaginn 7. desember klukkan 19:00. Allir leiktímar eru á íslenskum tíma.

,,Dana er ennþá meidd og staðan á henni er óbreytt og er því ekki tiltæk í þetta verkefni, meiddist á illa á ökkla í mars og er enn að glíma við það. Við þurfum að gefa henni lengri tíma að jafna sig, að öðru leiti eru allir aðrir leikmenn klárir.”

,,Við tökum þá ákvörðun að velja 17 leikmenn og halda 18. sætinu lausu og það getur vel verið að við bætum við 18. leikmanninum.”

Hópinn má sjá hér að neðan:

Markverðir:

Hafdís Renötudóttir (Valur)

Sara Sif Helgadóttir (Haukar)

Útileikmenn:

Elín Klara Þorkelsdóttir (IK Sävehof)

Lovísa Thompson (Benfica)

Thea Imani Sturludóttir (Craiova)

Sonja Lind Sigsteinsdóttir (Haukar)

Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín (Thüringer)

Elín Rósa Magnúsdóttir (HSG Blomberg-Lippe)

Díana Dögg Magnúsdóttir (HSG Blomberg-Lippe)

Matthildur Lilja Jónsdóttir (ÍR)

Katrín Tinna Jensdóttir (HH Elite)

Sara Dögg Hjaltadóttir (ÍR)

Rakel Oddný Guðmundsdóttir (Haukar)

Sandra Erlingsdóttir (ÍBV)

Elísa Elíasdóttir (Valur)

Katrín Anna Ásmundsdóttir (Fram)

Lilja Ágústsdóttir (Zwickau)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top