Gísli Þorgeir Kristjánsson leikmaður þýska stórliðsins SC Magdeburg og íslenska landsliðsins, hefur verið valinn næst besti handboltamaður heims af handboltamiðlinum Upskill Handball. Landsliðsfélagi hans, Ómar Ingi Magnússon, hafnaði í sjöunda sæti í kjörinu. Verðlaunin nefnast The One og eru nú veitt í þriðja sinn. Daninn Mathias Gidsel leikmaður Füchse Berlin var valinn besti handboltamaður heims þriðja árið í röð og hlaut 254 stig í kjörinu. Gísli Þorgeir hafnaði í öðru sæti með 136 stig en Portúgalinn Francisco Costa varð þriðji með 123 stig. Gísli Þorgeir hafði því 13 stiga forskot á Costa en Gidsel hafði nokkra yfirburði í efsta sætinu. Ómar Ingi Magnússon, samherji Gísla Þorgeirs hjá Magdeburg, hafnaði í sjöunda sæti með 70 stig. Íslendingarnir tveir eru því báðir á meðal sjö bestu handboltamanna heims samkvæmt kjörinu. Alls tóku 40 þjálfarar, 50 fjölmiðlamenn og um 30.000 handboltaáhugamenn þátt í valinu. Atkvæði þjálfara vega 40 prósent af heildarniðurstöðunni, atkvæði fjölmiðlamanna önnur 40 prósent og atkvæði handboltaáhugafólks 20 prósent. Athygli vekur að Magdeburg á þrjá leikmenn á meðal sjö efstu í kjörinu en alls eru fimm leikmenn þýsku Bundesligunnar á topp tíu listanum. Auk Ómars Inga er Magnus Saugstrup leikmaður Magdeburg í 4.sæti. Domen Makuc leikmaður Kiel er í 5.sæti og Simon Pytlick leikmaður Flensburg er í 8.sæti.Tíu bestu handboltamenn heims samkvæmt Upskill Handball


Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.