Dregið verður í átta liða úrslit Powerade-bikarkeppni HSÍ í karla- og kvennaflokki á morgun. Drátturinn fer fram á Oche og hefst klukkan 12:15. Sjö lið úr Olís-deild karla eru komin áfram í átta liða úrslit bikarkeppninnar en Grótta er eina liðið úr Grill 66-deildinni sem er eftir í keppninni. Gróttumenn verða því í hlutverki litla liðsins þegar dregið verður á morgun en hin sjö liðin leika öll í efstu deild. Þau eru Afturelding, FH, Haukar, ÍBV, Valur, Víkingur og Þór. Í kvennaflokki eru hins vegar eingöngu lið úr Olís-deildinni eftir í keppninni. Sjö lið hafa þegar tryggt sér sæti í átta liða úrslitunum en síðasta sætið ræðst í kvöld þegar Grótta og Fram eigast við. Sú viðureign hefst klukkan 19:30 og verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV 2. Stjarnan tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum í gærkvöldi eftir æsispennandi viðureign gegn ÍBV sem þurfti að tvíframlengja áður en úrslit réðust. Eyjakonur eru því úr leik en Stjarnan verður í pottinum á morgun.Liðin í pottinum – karlar
Liðin í pottinum – konur

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.