Krickau spurði leikmennina hvort þeir ættu að hætta í Meistaradeildinni
Andreas Gora /AFP

Nicolej Krickau, þjálfari þýska stórliðsins Füchse Berlin, var allt annað en sáttur með sína menn eftir 34–31 tap gegn Álaborg í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi. Daninn var svo ósáttur með frammistöðuna að hann spurði leikmenn sína í búningsklefanum hvort þeir ættu einfaldlega að draga sig úr keppninni.

Berlínarliðið hefur átt erfitt uppdráttar í Meistaradeildinni á tímabilinu og er enn án stiga eftir fyrsta leik milliriðilsins. Liðið tapaði báðum leikjum sínum gegn Veszprém í riðlakeppninni og fór því stigalaust inn í milliriðilinn.

Tap gærdagsins gegn Álaborg gerði stöðuna enn erfiðari en Füchse Berlin hefur komist alla leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar undanfarin tvö tímabil. Krickau var harðorður í samtali við danska ríkisútvarpið, DR, eftir leikinn.

„Við spilum ekki af þeirri ákefð sem þarf í Meistaradeildinni. Ég skil það einfaldlega ekki,“ sagði Krickau.

Hann upplýsti síðan að hann hefði tekið málið upp við leikmenn sína strax eftir leikinn.

„Ég spurði þá í búningsklefanum hvort við ættum bara að draga okkur úr keppninni. Ef þetta er það sem við bjóðum upp á þremur dögum eftir stórleik þá komumst við hvort sem er ekki langt.“

Krickau sagði frammistöðuna hafa verið óásættanlega á nánast öllum sviðum. Berlínarliðið gerði fjölmörg mistök í sóknarleiknum, nýtti færin illa og átti í miklum vandræðum með öflugan varnarleik Álaborgar.

Mathias Gidsel, stórstjarna Füchse Berlin, var sömuleiðis ósáttur með frammistöðuna.

„Mér fannst við sækja á vörnina þeirra af aðeins 80 prósenta krafti. Með 80 prósentum áttu engan möguleika hér í Álaborg,“ sagði Gidsel í samtali við þýska fjölmiðla.

Sander Sagosen var maður leiksins hjá Álaborg með níu mörk í sínum fyrsta Meistaradeildarleik á tímabilinu eftir langvarandi meiðsli. Álaborg leiddi 18–16 í hálfleik og náði mest sex marka forskoti í síðari hálfleik. Berlínarliðið minnkaði muninn í tvö mörk undir lokin en komst ekki nær.

Samkvæmt Sport Bild ákvað Krickau að aflýsa mögulegum frídegi leikmanna eftir tapið. Í staðinn verður æft þegar liðið snýr aftur til Berlínar. Füchse Berlin mætir Frisch Auf Göppingen á útivelli í þýsku Bundesligunni á sunnudaginn og Krickau segir að leikmennirnir verði að sýna allt annað hugarfar í þeim leik.

Berlínarliðið á sjö leiki eftir í milliriðli Meistaradeildarinnar og þarf að komast í hóp fjögurra efstu liðanna til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top