Stjórn HSÍ hefur tekið þá ákvörðun að frá og með komandi tímabili verði skylda að rafrænir leikhléshnappar verði til staðar í þeim íþróttahúsum þar sem leikir í Olís-deildum karla og kvenna verða leiknir. Rafrænir leikhlés hnöppum á Íslandi hefur fjölgað hægt og rólega síðustu ár en nú hefur stjórn HSÍ tekið þá ákvörðun að skylda verði að vera með rafræna leikhlés hnappa í Olís-deildunum. Grænu leikhlés spjöldin heyra því sögunni til í efstu deild á Íslandi. ,,Handknattleikssamband Íslands hefur tekið þá ákvörðun að far og með keppnistímabilinu 2025-2026 verði skylda að allir leikir í Olís-deildum karla og kvenna fari fram í íþróttahúsum þar sem rafrænir hnappar fyrir leikhlé eru til staðar. Markmið þessa er að tryggja falegri og markvissari leikstjórn og einfalda ferlið fyrir leikmenn og dómara," segir í tilkynningu frá HSÍ til félaga í Olís-deildinni. Hvergi kemur þó fram hverjar afleiðingar félaganna verði ef ekki verður staðið undir þeim kröfum sem HSÍ setur á félögin til að tryggja falegri og markvissari leikstjórn. ,,Við hvetjum íþróttafélög og rekstraraðila íþróttahúsa til að hefja undirbúning fyrir þessa breytingu, svo allt verði til reiðu þegar nýtt tímabil hefst," segir enn frekar. Það verður fróðlegt að sjá hvort öll félög verði búin að tryggja sér rafræna leikhlés hnappa fyrir 1.umferð í Olís-deildunum karla og kvenna sem hefst í upphafi september mánaðar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.