Verður þetta titlalaust tímabil í Krikanum?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Aron Pálmarsson FH (Sævar Jónsson)

Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum.

Olís-deild karla hefst miðvikudaginn 3.september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni.

Í dag er 18 dagar þangað til Olís-deild karla hefst og því löngu orðið tímabært að kynna sér liðin í deildinni. Í dag förum við yfir lið FH.

Það gekk mikið á í herbúðum FH í fyrra. Aron Pálmarson yfirgaf liðið á miðju tímabili og gekk í raðir Veszprem eftir virkilega erfiða byrjun í Evrópudeildinni. FH-ingar þéttu raðirnar eftir brotthvarf Arons og sigla deildarmeistaratitlinum heim. Vonbrigði í bikarkeppninni enn eitt árið og detta út gegn Íslandsmeisturum Fram á dramatískan hátt. Þrátt fyrir deildarmeistaratitil má gera ráð fyrir því að FH-ingar hafi verið frekar svekktir með tímabilið í heild sinni. 

Þjálfarinn:
Sigursteinn Arndal hefur þjálfað liðið undanfarin ár og landaði þeim stóra tímabilið 2023/24. Miklar breytingar á liðinu núna og Steini að fara að byggja upp nýtt lið hjá FH en mikið af spennandi efnivið. 

Breytingar:
Miklar breytingar á FH fyrir tímabilið í ár. Þeirra besti og reynslumesti leikmaður undanfarin ár, Ásbjörn Friðriksson hefur lagt skóna á hilluna og þar eru FH að missa mikinn leiðtoga úr hópnum. Talandi um leiðtoga missi þá lagði Ólafur Gústafsson einnig skóna á hilluna. Jóhannes Berg Andrason hélt út í atvinnumennsku. FH-ingar sóttu Bjarka Jóhannsson frá Danmörku og Birkir Benediktsson gekk í raðir liðsins frá Japan. Ágúst Birgisson hætti við að hætta við og tekur slaginn með liðinu í vetur.

Lykilmenn:
Jón Bjarni Ólafsson, Daníel Freyr Andrésson, Garðar Ingi Sindrason

Fylgist með:
Bjarki Jóhannsson unglingalandsliðs leikmaður sem ólst upp í KA. Hefur spilað í Danmörku undanfarin ár og var t.d. í hóp hjá stórliði Álaborgar. Verður spennandi að fylgjast með hvernig hann mun koma inn í Olísdeildin í ár.

Framtíðin:
Brynjar Narfi Arndal einn efnilegasti leikmaður landsins og sonur þjálfarans. Brynjar var yngsti leikmaður í sögu deildarinnar í fyrra þegar hann kom inná í leik gegn Fjölni. Hann hefur verið duglegur að styrkja sig í sumar og mun án efa fá stærra hlutverk í töluvert breyttu FH liði í vetur.

Við hverju má búast:
FH-ingar mega vera spenntir fyrir framtíðinni. Það er mikill efniviður í félaginu og dugar að nefna Garðar Sindrason, Brynjar Narfa og Ómar Darra Sigurgeirsson. Það hefur þó gífurleg reynsla farið úr liðinu þannig þá má alveg reikna með vaxtarverkjum í Kaplakrika í vetur meðan þessir ungu leikmenn hlaupa af sér hornin. FH vinnur sennilega enga titla í ár en FH-ingar ættu ekki að vera í vandræðum með að flykkjast bakvið þennan efnilega hóp og sjá þá verða af framtíðar atvinnumönnum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Post Views: 16
Scroll to Top