
HK hefur tilkynnt að þeir hafi framlengt samning sinn við Kristján Pétur Barðason. Kristján Pétur er hægri hornamaður og binda HK-ingar miklar vonir við að hann muni mynda öflugt teymi með Leó Snæ í vetur. Handkastið óskar Kristjáni Pétri og HK til hamingju með nýja samninginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.