Þýska stórliðið Kiel gaf út á samfélagsmiðli sínum nú rétt í þessu flott myndband þar sem félagið opinberar útlitið á nýju treyjum liðsins fyrir komandi tímabil í þýsku úrvalsdeildinni. Þýsku risarnir færa sig út fyrir þægindarammann með nýju treyjunni en Kiel eru þekktir fyrir sinn hvíta og svarta lit. Félagið hefur tilkynntu nýju treyjuna undir slagorðinu „Fyrir þig, fyrir okkur, fyrir alla!“ ,,Treyjan sameinar hefð og nútímalega hönnun í klassískum svörtum og hvítum litum félagsins og er hylling til sterkrar sjálfsmyndar félagsins," segir í umfjöllun Hbold um nýju treyjuna. Treyjuna og glæsilegt kynningarmyndband frá Kiel má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.