Dregið í riðla í Evrópudeildinni
Frank Hoermann / SVEN SIMON AFP

Eitt Íslendingalið var í pottinum er dregið var í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en þýska liðið Blomberg-Lippe sem sló út Val um síðustu helgi var í pottinum.

Með liðinu leika þrjár íslenskar landsliðsstelpur þær, Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir. Þær þrjár eru allar í HM hópi íslenska landsliðsins sem tekur þátt á heimsmeistaramótinu sem hefst næstkomandi miðvikudag.

Blomberg-Lippe sem er á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar var í styrkleika tvö þegar dregið var enduðu í riðli með, danska félaginu Nykobing Falster, MOL Esztergom frá Ungverjalandi og Chambray Touraine frá Frakklandi.

Þýska liðið, Thuringer eru ríkjandi meistarar í Evrópudeildinni eru í A-riðli, Blomberg-Lippe enduðu í 3.sæti í Evrópudeildinni á síðustu leiktíð.

Leikið er í fjórum fjögurra liða riðlum. Riðlakeppnin hefst 10. janúar. Riðlarnir eru eftirfarandi:

Riðill A: 
Thuringer
Motherson Mosonmagyarovari
Minaur Baia Mare
Larvik

Riðill B:
Nykobing
Blomberg Lippe
MOL Esztergom
Chambery Touraine

Riðill C:
Tertnes Bergen
Rapid Bucuresti
Lokomotiva Zagreb
Oldenburg

Riðill D:
Corona Brasov
Viborg
Bourgogne Dijon
MKS Zaglebie Lubin

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top