Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 20.umferð fari í Olís deild karla. Þór – Haukar (Miðvikudagur 18:30) / Sigurvegari: Haukar Þórsarar fá nýkrýnda bikarameistara í heimsókn norður einungis 3 dögum eftir að Haukar lyftu titlinum. Talandi um tækifæri fyrir Þór til að vinna Haukana! Það hefur sýnt sig undanfarin ár að liðin sem vinna bikarmeistaratitilinn eru smá ryðguð í næsta leik á eftir hver svo sem skýringin á því er. Ég held þó að Þórsarar klúðri þessu dauðafæri og Haukar fari með bæði stigin heim í Hafnarfjörðinn. ÍBV – ÍR (Fimmtudagur 18:00) / Sigurvegari: ÍBV ÍBV fær ÍR-inga sem komu öllu á óvart og fóru allar leið í bikarúrslitin um helgina. ÍR verða án Baldur Fritz og mun því reyna mikið á aðra leikmenn liðsins. Ég held að helgin sitji aðeins í ÍR liðinu og ÍBV vinni þennan leik nokkuð þægilega. HK – Selfoss (Fimmtudagur 18:30) / Sigurvegari: Selfoss Virkilega spennandi viðureign í fallbaráttunni og um sæti í úrslitakeppninni. HK er sem stendur í 8.sæti deildinnar en með sigri geta Selfoss komist fyrir ofan þá. Mikið af leikmönnum HK eru að tala við önnur lið sem leigubílasögurnar eru réttar og gæti það haft áhrif á undirbúning HK fyrir leikinn. Selfoss mun mæta upp í Kórinn með sinn agaða bolta og fara með sigur af hólmi. FH – Afturelding (Fimmtudagur 19:00) / Sigurvegari: FH FH drullu svekktir að hafa ekki komist í úrslit bikarkeppninnar og munu mæta dýrvitlausir í þennan leik. Afturelding verið í basli eftir áramót en náðu að harka fram sigur gegn Stjörnunni í síðasta leik en FH verða of stór biti fyrir þá á fimmtudaginn og FH vinnur. Valur – Fram (Fimmtudagur 19:30) / Sigurvegari: Valur Stórleikur af gamla skólanum þar sem Reykjavíkurstórveldin mætast. Valsmenn á toppi deildinnar og ætla sér deildarmeistaratitilinn meðan Fram siglir lygnan sjó í 7.sæti deildarinnar en gætu náð að klóra sig eitthvað hærra. Valsmenn sjá deildartitilinn innan seilingar og munu vinna Fram. Stjarnan – KA (Föstudagur 18:30) / Sigurvegari: KA KA eflaust ennþá að naga sig í handarbökin að hafa tapað þessum leik gegn ÍR í undanúrslitum bikarsins. Stjarnan er í bullandi fallbaráttu og þurfa nauðsynlega á stigum að halda en það er mikilvægur leikur hjá liðinu næstkomandi mánudag sem ég held að þeir hafi augun á að vinna svo ég held að KA muni fara með stigin 2 úr Garðabænum í þetta skiptið. 19.umferð (4.réttir)
18.umferð (5.réttir)
17.umferð (2 réttir)
16.umferð (5 réttir)
15.umferð (5.réttir)
14.umferð (3 réttir)
13.umferð (4 réttir)
12.umferð (4 réttir)
11.umferð (4 réttir)
10.umferð (5 réttir)
9.umferð (4 réttir)
8.umferð (5 réttir)
7.umferð (3 réttir)
6.umferð (2 réttir)
5.umferð (3.réttir)
4.umferð (4.réttir)
3.umferð (5 réttir)
2.umferð (4 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.