EHF hyggst rannsaka meint kynþáttaníð – Hegðun sem ekki er liðin
Laurent Lairys / DPPI via AFP

Í úrslitaleik Evrópubikarsins um síðustu helgi þegar ungverska liðið Tatabánya og makedónska liðið GRK Ohrid mættust var alvarlegt atviki í miðjum leik þegar franska skyttan Baptiste Damatrin varð fyrir kynþáttafordómum úr stúkunni.

Tatabánya heimsótti Ohrid í síðari leik úrslitaeinvígisins eftir að hafa tapað fyrri leiknum 29-28. Á meðan heimaliðið tryggði sér sigur í einvíginu beindist athyglin að atviki sem átti sér stað í síðari hálfleik.

Í viðtali eftir leik sagði Baptiste Damatrin að í fyrstu hafi honum verið sýnd langatöng af stuðningsmanni Ohrid en síðar hafi sami stuðningsmaður byrjað að gefa frá apahljóð og benda á sig.

,,Þá var mælirinn fullur,“ sagði Damatrin. Samkvæmt Damatrin var ekki látið þar við sitja, heldur var einnig hrækt í átt að honum og liðsfélögum hans. „Flestir liðsfélagar mínir voru í áfalli og vissu ekki hvernig þeir áttu að bregðast við. Þetta var mjög furðuleg staða.“

Varð fyrir kynþáttarfordómum í úrslitaleik Evrópubikarsins

Nú hefur EHF, evrópska handknattleikssambandið sent frá sér yfirlýsingu um málið. Þar segir sambandið að málið sé komið á borð til sín. EHF segist leggja áherslu á að kynþáttafordómar eigi engan stað í evrópskum handknattleik.

Yfirlýsinguna má sjá hér að neðan:

Yfirlýsing vegna leiksins GRK Ohrid gegn MOL Tatabánya KC

Evrópska handknattleikssambandið (EHF) er meðvitað um atvik sem átti sér stað í úrslitaleik karla í EHF European Cup á sunnudag, milli GRK Ohrid og MOL Tatabánya KC, þar sem meint kynþáttaníð úr stúkunni var beint að leikmanni Tatabánya, Baptiste Damatrin.

EHF leggur áherslu á að kynþáttafordómar eigi engan stað í evrópskum handknattleik og sem samtök fordæmum við hvers kyns kynþáttafordóma, mismunun og umburðarleysi.

Slík hegðun gagnvart leikmönnum, dómurum, starfsmönnum eða áhorfendum verður ekki liðin.

Í framhaldinu hefur Evrópska handknattleikssambandið ákveðið að hefja rannsókn á ásökununum til að komast að því hvort hefja skuli formlegt málsmeðferðarferli.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top