Talant Dujshebaev þjálfari franska landsliðsins verður ekki næsti þjálfari THW Kiel í sumar. Þetta staðfestir hann sjálfur í samtali við Handball-World og segir að hann muni taka sér árs hlé frá þjálfun félagsliða. Nafn Dujshebaevs hefur verið nefnt í tengslum við möguleg þjálfaraskipti hjá þýska stórliðinu THW Kiel. Þar hefur verið velt upp þeim möguleika að Filip Jicha láti af störfum sem aðalþjálfari liðsins eftir tímabilið en THW Kiel leikur ekki í Evrópukeppni í fyrsta skipti í 33 ár á næstu leiktíð eftir afar dapra frammistöðu undir lok tímabilsins. Fullyrða að Jicha verði rekinn Dujshebaev segir hins vegar að ekki komi til greina að hann taki við félagsliði í sumar en hann hætti með pólska stórliðið Kielce í lok apríl á þessu ári, öllum að óvörum. „Ég mun taka mér hlé frá félagsliðahandbolta næsta árið og einbeita mér eingöngu að starfi mínu með franska landsliðinu. Á þeim tíma mun ég meta hvort það sé nægjanlegt verkefni fyrir mig til lengri tíma litið eða ekki,“ sagði Dujshebaev í viðtali við Handball-World. Dujshebaev, sem er 58 ára gamall og einn sigursælasti handknattleiksmaður sögunnar tók við franska landsliðinu á þessu ári og er að fara á sitt fyrsta stórmót með franska landsliðið á heimsmeistaramótið í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Dujshebaev hafði áður sagt frá því að hann hefði áhuga á að snúa aftur í félagshandbolta þjálfun strax í sumar, en hefur nú ákveðið að fresta þeirri endurkomu og einbeita sér alfarið að landsliðsverkefnum næsta árið. Nafn Guðjóns Vals Sigurðssonar þjálfara Gummersbach hefur einnig verið nefnt til sögunnar sem næsti þjálfari Kiel og þá hefur nafn Nikolaj Jacobsen þjálfara danska landsiðsins einnig verið nefnt til sögunnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.